Velkomin á heimasíðu 

4. bekkjar

2024 - 2025

Föstudagsfréttir

Heil og sæl.

Hér er fréttabréf vikunnar frá 4. bekk. Við viljum einnig hvetja ykkur til þess að smella á eftirfarandi frétt frá skólanum:

https://grunnskoli.hveragerdi.is/is/frettir-1/nemendathing-um-skolasokn-og-astundun

Bestu kveðjur úr Mjólkurbúinu :)


Olweusarsímtöl

Við erum Olweusarskóli og einn liður í þeirri áætlun snýr að heimhringingum. Þær fara fram tvisvar yfir skólaárið og það eru umsjónarkennarar sem sinna þeim. Innan skamms fara þær af stað hjá okkur þar sem líðan nemenda er aðalinntak samtalsins. 

Áður en samtalið á sér stað er mikilvægt að foreldrar taki samtalið við sitt barn og geta m.a. haft eftirfarandi atriði til hliðsjónar.


1. Hvernig líður barninu þínu í skólanum?

2. Hefur barnið þitt lent í erfiðum samskiptum í skólanum síðasta mánuðinn?

3. Á barnið þitt vini/bekkjarfélaga sem líður illa í skólanum?

4. Telur þú að barnið þitt hafi áreitt eða lagt aðra nemendur í einelti?

5. Hefurðu á tilfinningunni að barninu þínu líði betur í einhverjum kennslustundum? Þá hvaða?


Hér getið þið lesið nánar um Olweusaráætlunina á Íslandi. 

Föstudagsfréttir

Heil og sæl.

Hér er fréttabréf vikunnar frá 4. bekk. Við viljum einnig hvetja ykkur til þess að smella á eftirfarandi frétt frá skólanum:

https://grunnskoli.hveragerdi.is/is/frettir-1/barattudagur-gegn-einelti-og-heimhringingar-framundan

Bestu kveðjur úr Mjólkurbúinu.


Grænn dagur á morgun - 

- Baráttudagur gegn einelti -

Á morgun verður grænn dagur í skólanum okkar.  Þá erum við öll hvött til þess að mæta í einhverju grænu í tilefni af baráttudegi við einelti.


Markmið dagsins sem er að öllu jöfnu haldinn 8. nóvember ár hvert, er m.a. að efna til umræðu, fræðslu og viðburða til að vinna gegn einelti, hvetja til jákvæðra samskipta og efla vináttu.

Vonandi munu allir fylgjast með skilaboðunum sem krakkarnir ætla að skilja eftir út um allan bæ á morgun ;) 

Föstudagsfréttir

Hér til hliðar eru föstudagsfréttirnar frá 4. bekk.

Við viljum hvetja ykkur, sem eigið það eftir, að taka þessa örstuttu könnun um foreldrakaffið sem var í síðustu viku.

Linkur að könnuninni: https://forms.gle/N7CUCEnNmp1pkRRaA


Kíkið á Hagnýtar upplýsingar á síðunni.

Endilega kíkið á undirsíðuna Hagnýtar upplýsingar hér á bekkjarsíðunni. Þar var að koma inn efni fyrir ykkur foreldra sem tengist umræðuefni bekkjarfundar vikunnar sem var um svefn og miðlanotkun. 

Könnun um foreldrakaffið

Við viljum hvetja ykkur til þess að taka þátt í könnun um foreldrakaffið sem var haldið hér í 4. bekk. Endilega svarið þessari örstuttu könnun svo við fáum betri yfirsýn yfir foreldrakaffið og ykkar skoðun á því.

Smellið hér til að taka þátt í könnuninni.

Foreldrakaffi

Foreldrakaffi verður föstudaginn 25. okt.  kl. 8:30. 

Byrjað verður úti í Mjólkubúi í léttu spjalli og skoðun á verkum nemenda og námsefni. 

Að því loknu eða kl. 9 munu skólastjóri og deildarstjóri yngsta stigs taka á móti þeim sem vilja skoða nýbygginguna í skólanum. 

Stuðlum saman að góðri samvinnu.


Bleikur dagur á morgun

Við ætlum að vera bleik á morgun hér í Grunnskólanum í Hveragerði. 

Á Bleika deginum hvetjum við landsmenn til að vera bleik - fyrir okkur öll bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Hvetjum nemendur til þess að mæta í einhverju bleiku ;) 


Lestrarátak - Eitt skref í einu



Nú er hafið formlegt lestrarátak í 4. bekk.  

Nemendur hafa fengið heim lestarhefti sem nýtist í lestrarátakinu. Næstu 4 vikurnar eiga nemendur að lesa í lestrarátaksheftunum einu sinni á dag, samhliða því að lesa heima í heimalestrarbókum. Lestrarátakið kemur ekki í stað fyrir heimalesturinn.  Markmiðið með lestrarátakinu er að auka leshraða og lesskilning hjá nemendum. 


Um Eitt skref í einu

Eitt skref í einu er fimm stiga þjálfunarefni sem hjálpar nemendum að bæta lesfimi sína. Hvert stig inniheldur 20 þjálfunartexta, þyngd texta á öllum stigum er sú sama en textarnir lengjast u.þ.b. fimm orð á viku til að koma til móts við mögulega aukna lesfimi nemenda. Þjálfun hvers stigs tekur fjórar vikur og fer hún fram undir leiðsögn lestrarþjálfara (foreldris/forráðamanns) en með dyggri eftirfylgni kennara.

 

Leiðbeiningar

- Byrjið á því að láta barnið lesa í gegnum orðin efst á blaðinu. Barnið les þau eins oft og þörf krefur.

- Byrjið fyrsta lestur. Stillið 1 mínútu á skeiðklukku og látið barn lesa. Þegar tíminn rennur út merkið við með gulum lit hvert það náði að lesa.

- Lesið svo aftur í 1 mínútu og merkið við með rauðum lit hvert barnið náði að lesa í það skipti.

- Lesið í þriðja skiptið í 1 mínútu og merkið við með grænum lit hvert barnið náði að lesa.

- Teljið orðin við hvert skipti og merkið í fyrstu opnu heftisins.

- Ræðið spurningar í lokin og skráið ný og áhugaverð orð aftast í Orðafjársjóðinn.

Athugið!

Ef allur textinn er lesinn innan einnar mínútu á að fara aftur í upphaf textans og lesa sama texta þar til mínútan er liðin.

Vonandi er þetta skiljanlegt, annars eiga krakkarnir að þekkja þetta frá því í fyrra en þau hafa farið í gegnum svona átak hjá okkur í skólanum. 


Fréttir

Minnum á útivistartímann

Útivistarreglur barna eru hér til hliðar. 

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu. Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í símanum eða tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.

Útilistaverk

Í útikennslu fórum við út í listigarð og nemendur fengu það verkefni að útbúa listaverk úr náttúrulegu efni sem þau myndu finna á jörðinni.  Þau urðu sjálf að útfæra verkið og setja það fram og láta kennara taka af því mynd. 

Hér má sjá brot af þeim verkum sem voru búin til. 




Tónleikar

Sinfóníuhljómsveit Suðurlands kom í heimsókn til okkar og hélt tónleika fyrir nemendur í 3. og 4. bekk. Þessir tónleikar eru hluti af kynningarátaki hljómsveitarinnar á klassískum tónlist fyrir nemendur grunnskóla á Suðurlandi.

Á tónleikunum kom fram 13 manna klassísk hljómsveit undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar ásamt sögumanni sem að þessu sinni var Felix Bergsson leikari. 

Aðalverk tónleikanna var tónverkið Pétur og úlfurinn eftir Sergei Prokofiev og sagði Felix Bergsson söguna með tónlistarflutningnum. Tónleikunum lauk á því að nemendur tóku lagið Það vantar spýtur með hljómsveitinni. Krakkarnir skemmtu sér konunglega á tónleikunum og við þökkum hljómsveitinni og Felix Bergssyni kærlega fyrir heimsóknina.


Göngum í skólann

Í dag hefst hið árlega verkefni Göngum í skólann sem haldið er í átjánda sinn hér á landi og Grunnskólinn í Hveragerði tekur að sjálfsögðu þátt. Því lýkur svo formlega miðvikudaginn 2. október. Árlega taka milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Megin markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar og að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið er.

Göngum í skólann er hluti af verkefninu ,,Virkar og öruggar leiðir í skólann", sem nýtur stuðnings "Go for Green" og annarra samstarfsaðila.
Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með mörgum öðrum þjóðum heims, svo sem Áströlum, Brasilíumönnum, Kýpurbúum, Bretum, Írum, Nýsjálendingum, Svisslendingum og Bandaríkjamönnum.

Septembermánuður er ,,Göngum í skólann" mánuður.
Í septembermánuði ár hvert eru börn hvött sérstaklega til að nýta sér virkan samgöngumáta, svo sem göngu, til að ferðast til og frá skóla. Vegna aðstæðna hérlendis var ákveið af undirbúningshóp verkefnisins að hvetja skóla til að byrja verkefnið í september og ljúka því á alþjóðlega göngum í skólann deginum í byrjun október. Markmið verkefnisins eru meðal annars að:

- Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.

- Stuðla að heilbrigðum lífsstíll fyrir alla fjölskylduna, en hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.

- Minnka umferð við skóla og draga þar með úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum ásamt betra og hreinna lofti og öruggari og friðsælli götum og hverfi.

 

- Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál. Beina sjónum að því hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Auka samfélagsvitund.

 

- Auka vitund um reglur þær er lúta að öryggi á göngu og hjóli.

 

Sjá nánar hér:

http://www.gongumiskolann.is/

Árgangagöngur

Skólinn fór í sínar árlegu árgangagöngur í dag.  Veðrið var upp á sitt besta og allir nutu sín vel. 

Í ár gengum við í 4. bekk meðfram Hamrinum og yfir hann. Allir voru ánægðir með að komast upp á Hamarinn, sumir voru að fara í fyrsta sinn á meðan aðrir höfðu margsinnis farið þessa leið. Þar fengu þau fræðslu um höfuðáttirnar en þær höfum við verið að vinna með í þessari viku. Einnig fengu þau fræðslu um ísrákir sem sjást á mörgum steinum uppi á Hamri. Á heimleiðinni áttu margir erfitt með að ganga framhjá berjalyngi sem voru komin með ætileg ber svo það laumuðust ber í suma vatnsbrúsana! Það voru ánægðir en þreyttir nemenendur sem komu til baka í skólann eftir þessa göngu.

Tilkynning um upphaf skólaárs

Nemendur skólans mæti á skólasetningu miðvikudaginn 21. ágúst sem hér segir:

2.-3. bekkur kl. 09:00

4.-5. bekkur kl. 9:30

6.-7. bekkur kl. 10:00

8.-10. bekkur kl. 11:00

ATH: Nemendur 1. bekkja verða boðaðir í viðtöl með foreldrum sínum dagana 14.-15. og 19.-20 ágúst.

Frístund hefst 21. ágúst. Upplýsingar á heimasíðu Bungubrekku.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 22. ágúst.

 
Skólastjóri



Skóladagatal

Skóladagatalið fyrir komandi skólaár er komið á heimasíðu grunnskólans og eins hér á þessa síðu. Endilega kíkið á það og athugið mikilvægar dagsetningar.

Skóladagatal skólaárið 2024 - 2025.


Nú liggja fyrir allar upplýsingar um umsjónarkennara fyrir næsta skólaár og má sjá þá hér í þessari frétt frá grunnskólanum:

Skilaboð frá skólastjóra til nemenda:

Til nemenda Grunnskólans í Hveragerði.

Ég vona innilega að þið eigið öll gott sumarfrí.

Hér eru þrjár reglur fyrir sumarið.


1. Verið dugleg að lesa, forvitnast og fræðast. Endilega takið þátt í sumarlestri.


2. Verið dugleg að fara út, hugsa um heilsu ykkar, andlega og líkamlega. Klæðið ykkur eftir veðri gefið tölvum og símum algert frí þegar sólin skín. Hún verður vonandi vel sjáanleg í sumar. Gular- og appelsínugular veðurviðvaranir taka sér vonandi algert frí.


3. Verið góð við mömmu ykkar og pabba og alla sem standa ykkur næst - og segið þeim reglulega að ykkur þyki vænt um þau.


Ég hlakka til að hitta ykkur á götum bæjarins og vonandi í Laugaskarði oft og iðulega. Eins hlakka ég til að hitta ykkur 21. ágúst næstkomandi á skólasetningu skólaársins 2024-2025.


Bestu kveðjur,
Sævar